By admin, on July 29th, 2010%
Skálholtskvartettinn er langt kominn með að hljóðrita strengjakvintett Schuberts í C dúr ásamt franska sellóleikaranum Bruno Cocset og í kvöld verður verkið á dagskrá Sumartónleika í Skálholtskirkju. Á laugardaginn kemur kl. 15.00 flytur Skálholtskvartettinn svo síðasta strengjakvartett Schuberts, þann í G dúr op. 161.
Að ári mun kvartettinn hljóðrita verkið ásamt tveimur öðrum af síðari kvartettum tónskáldsins, . . . → Read More: Síðustu kammerverk Schuberts
By admin, on July 20th, 2010%
Sumartónleikar í Skálholtskirkju halda áfram fjórðu vikuna í sumar, en aðsókn hefur verið einstaklega góð það sem af er sumri.
Fimmtudaginn 22 júlí hefst tónleikaröð til minningar um Helgu Ingólfsdóttur semballeikara er lést á síðasta ári, en hún stofnaði Sumartónleika í Skálholtskirkju sumarið 1975.
Þar mun Bachsveitin í Skálholti undir stjórn Peters Spissky flytja dagskrá undir yfirskriftinni „Ítölsk . . . → Read More: Minningartónleikaröð til heiðurs Helgu Ingólfsdóttur 22. – 25. Júlí
By admin, on July 18th, 2010%
Að gefnu tilefni er hér bent á reikningsnúmer Sumartónleika sem hægt er að leggja inná frjáls framlög sé maður ekki með reiðufé á sér á tónleikunum.
Reikningurinn er í Arionbanka nr. . . . → Read More: Frjáls framlög
By admin, on July 16th, 2010%
Tríóið Süsser Trost lék eigin tónlist og annarra á frábærum tónleikum í Oddsstofu í gærkveldi. Tónlekarnir voru titlaðir „Hold og blóð – mjúkar ástir og harðar”. Stofan var þétt setin og stemningin einstök. Kenndi ýmissa grasa í hljóðfæraútsetningum: Sérstaklega minnisstæð er samsetningin semball – tamborína – bassatromma og bassafiðla með rödd Steinunnar. Þremenningarnir spila aftur á . . . → Read More: Notaleg stund í Oddsstofu
By admin, on July 3rd, 2010%
Fyrsti dagur Sumartónleika í Skálholtskirkju hófst með erindi Ercoles Nisini og því næst voru tvennir tónleikar með fjölbreyttum dagskrám af hljóðfæra- og söngtónlist frá upphafi 17. aldar. Eftir kvöldmat var svo tekið til við að æfa fyrir dagskrá sunnudagsins, Maríuvesper eftir Claudio Monteverdi. Þeir tónleikar eru sérstakir afmælistónleikar á 35 ára afmæli Sumartónleika, og eru þeir . . . → Read More: Monteverdi vesper
By admin, on June 29th, 2010%
Tónlistarmenn streyma nú til landsins til að koma fram á Sumartónleikum. Einn af þeim sem koma í dag er Ercole Nisini, sem leiðir barokkhópinn Instrumenta Musica sem heldur fyrstu tónleika sumarsins ásamt Jóhönnu Halldórsdóttur altsöngkonu. Hann verður líka með erindi um tónlist og hljóðfæri barokktímans í Skálholtsskóla á laugardaginn kl. 14.
Hér er stutt tóndæmi frá Ercole . . . → Read More: Fyrstu gestirnir koma til landsins
By admin, on June 20th, 2010%
Sumartónleikar í Skálholtskirkju hefjast 3. júlí. Í ár er 35 ára afmæli hátíðarinnar, en fyrstu tónleikarnir voru haldnir 12. júlí 1975.
Fjölmargir tónleikar verða að vanda yfir sex vikna tímabil í sumar og flytjendur verða alls um 200. Fimm kammerkórar frá fjórum löndum og fjölmargir hljóðfæraleikarar og einsöngvarar víðs vegar að koma einnig fram.
Fyrstu helgina kemur . . . → Read More: Sumartónleikar hefjast 3. júlí
By admin, on June 13th, 2010%
Nú eru komnar upplýsingar á vefinn um flesta flytjendur og helstu tónskáld í sumar, bæði á ensku og íslensku.
Dagskráin er einnig komin inn á ensku.
Sjáumst . . . → Read More: Flytjendur sumarsins
By admin, on June 4th, 2010%
Kynnið ykkur dagskrá Sumartónleika í Skálholtskirkju sem er nú komin hér inn á síðuna. Smám saman munu birtast meiri upplýsingar, m.a. . . . → Read More: Dagskrá 2010 komin á vefinn
By admin, on June 3rd, 2010%
Sumartónleikar í Skálholtskirkju 2010
35 ára afmælishátíð – dagskráin verður birt nú um helgina.
Alþjóðleg samvinna hefur lengi verið aðalsmerki Sumartónleika í Skálholtskirkju. Í ár er hún óvenju víðtæk. Kórar, sveitir, tónskáld, einsöngvarar og einleikarar víðs vegar að frá Norðurlöndum, Evrópu og Ameríku ráðast í fjölmörg misstór verkefni, allt frá frumflutningi á nýjum kór- og kammerverkum til hins . . . → Read More: Hátíðin í ár