Monteverdi vesper

Fyrsti dagur Sumartónleika í Skálholtskirkju hófst með erindi Ercoles Nisini og því næst voru tvennir tónleikar með fjölbreyttum dagskrám af hljóðfæra- og söngtónlist frá upphafi 17. aldar. Eftir kvöldmat var svo tekið til við að æfa fyrir dagskrá sunnudagsins, Maríuvesper eftir Claudio Monteverdi. Þeir tónleikar eru sérstakir afmælistónleikar á 35 ára afmæli Sumartónleika, og eru þeir stærstu, bæði að lengd og umfangi frá stofnun hátíðarinnar. Flytjendur eru alls 65 manns, kammerkórinn Collegium cantorum frá Uppsala í Svíþjóð, félagar úr Stúlknakór Reykjavíkur – Vox junior, undir stjórn Margrétar Pálmadóttur, barokkhópurinn Instrumenta Musica frá Dresden ásamt íslenskum hljóðfæraleikurum auk einsögvaranna sem eru Marta G. Halldórsdóttir og Rannveig Sif Sigurðardóttir sópranar, Eyjólfur Eyjólfsson, Nils Högman og Sigurður Hafþórsson tenórar, Peter Johnsson og Tryggve Nevéus bassar.

Leave a Reply

 

 

 

You can use these HTML tags

<a href="" title=""> <abbr title=""> <acronym title=""> <b> <blockquote cite=""> <cite> <code> <del datetime=""> <em> <i> <q cite=""> <strike> <strong>