Tríóið Süsser Trost lék eigin tónlist og annarra á frábærum tónleikum í Oddsstofu í gærkveldi. Tónlekarnir voru titlaðir „Hold og blóð – mjúkar ástir og harðar”. Stofan var þétt setin og stemningin einstök. Kenndi ýmissa grasa í hljóðfæraútsetningum: Sérstaklega minnisstæð er samsetningin semball – tamborína – bassatromma og bassafiðla með rödd Steinunnar. Þremenningarnir spila aftur á morgun, þá verk frá upphafi 17. aldar. Ekki missa af því!