Sumartónleikar í Skálholtskirkju halda áfram fjórðu vikuna í sumar, en aðsókn hefur verið einstaklega góð það sem af er sumri.
Fimmtudaginn 22 júlí hefst tónleikaröð til minningar um Helgu Ingólfsdóttur semballeikara er lést á síðasta ári, en hún stofnaði Sumartónleika í Skálholtskirkju sumarið 1975.
Þar mun Bachsveitin í Skálholti undir stjórn Peters Spissky flytja dagskrá undir yfirskriftinni „Ítölsk strengjasveifla” með verkum eftir A. Vivaldi, A. Scarlatti, A. Corelli, G.F. Händel og J.S. Bach.
Laugardaginn 24. Júlí hefst dagskráin með minningarerindi Kolbeins Bjarnasonar um Helgu Ingólfsdóttur.
Kl. 15:00 verða tónleikar í kirkjunni undir heitinu „H.I. In memorian”, en það er nafn á nýju verki eftir Óliver Kentish sem hann tileinkar minningu Helgu Ingólfsdóttur. Á þessum tónleikum mun Hedwig Bilgram orgelleikari og fyrrverandi kennari Helgu í München ásamt Guðrúnu Óskarsdóttur semballeikara, Mörtu Halldórsdóttur sópransöngkonu o.fl. flytja, auk verksins eftir Óliver, tónlist eftir Johann Sebastian Bach, Harald Genzmer , Georg Friedrich Händel og Johann Gottfried Walther.
Kl. 17:00 verða tónleikar með Bachsveitinni í Skálholti sem bera titilinn „Bach í Skálholti” en samnefnd hljómplata kom út fyrir margt löngu með leik Helgu Ingólfsdóttur og Manuelu Wiesler. Á tónleikunum verða fluttir konsertar og kantata eftir J. S. Bach. Einsöngvari verður Marta G. Halldórsdóttir sópran, og einleikarar Hedwig Bilgram á orgel, Peter Spissky á fiðlu og Peter Tompkins á óbó.
Sunnudaginn 25. Júlí kl. 15:00 verður dagskráin frá fimmtudagskvöldinu, Ítölsk strengjasveifla” endurtekin og kl. 17:00 verður Guðsþjónusta þar sem Hedwig Bilgram og Marta G. Halldórsdóttir munu sjá um tónlistarflutning. Prestur verður sr. Egill Hallgrímsson.
Stofnaður verður minningarsjóður um Helgu Ingólfsdóttur í tengslum við tónleikana og verður hann kynntur nánar í Skálholti tónleikadagana.
Hi there. Although I don”t normally write a resonse on blogs, I decided to today, just to thank you really! I have finally found the information I was looking for (via your blog) on the 3rd page of Google results! So now I”m all covered
Thanks again!