Síðustu kammerverk Schuberts

Skálholtskvartettinn er langt kominn með að hljóðrita strengjakvintett Schuberts í C dúr ásamt franska sellóleikaranum Bruno Cocset og í kvöld verður verkið á dagskrá Sumartónleika í Skálholtskirkju. Á laugardaginn kemur kl. 15.00 flytur Skálholtskvartettinn svo síðasta strengjakvartett Schuberts, þann í G dúr op. 161.

Að ári mun kvartettinn hljóðrita verkið ásamt tveimur öðrum af síðari kvartettum tónskáldsins, Rósamundu og Dauðann og stúlkuna.  Upptökustjóri er Peter Wachhorn, en hann stýrir útgáfufyrirtækinu Musica Omnia sem er staðsett í Boston og mun gefa út þessa Schubertseríu með Skálholtskvartettinum. Leiðari kvartettsins er Jaap Schröder, en hann hefur hljóðritað fjölda hljómdiska af verkum eftir Schubert, Schumann og Mendelsohn með Atlantis tríóinu og félögum fyrir Musica Omnia. Í Skálholtskvartettinum eru auk Jaaps Rut Ingólfsdóttir, Svava Bernharðsdóttir og Sigurður Halldórsson

Leave a Reply

 

 

 

You can use these HTML tags

<a href="" title=""> <abbr title=""> <acronym title=""> <b> <blockquote cite=""> <cite> <code> <del datetime=""> <em> <i> <q cite=""> <strike> <strong>