(Scroll down for English)
Hljómeyki var stofnað árið 1974 og hefur frá upphafi verið í fremstu röð íslenskra kóra. Hópurinn starfaði fyrstu árin undir stjórn Rutar L. Magnússon og flutti þá aðallega veraldlega tónlist frá ýmsum löndum. Árið 1986 tók kórinn upp samvinnu við Sumartónleika í Skálholti og hefur síðan þá lagt megináherslu á flutning nýrrar íslenskrar tónlistar. Í Skálholti hefur Hljómeyki flutt ný verk eftir mörg helstu tónskáld landsins, svo sem Atla Ingólfsson, Elínu Gunnlaugsdóttur, Hildigunni Rúnarsdóttur, Jón Nordal, Jórunni Viðar, Óliver Kentish, Svein Lúðvík Björnsson, Úlfar Inga Haraldsson og Þuríði Jónsdóttur. Hljómeyki hefur frumflutt yfir 50 tónverk, innlend sem erlend, og var í hópi 13 kóra um víða veröld sem pantaði og frumflutti verkið Glory and the Dream eftir Richard Rodney Bennett vorið 2001. Verkið og flutningurinn hér á landi fengu frábæra dóma.
Hljómeyki hefur einnig tekið þátt í óperuflutningi og má þar nefna Dido og Æneas eftir Purcell, Orfeus og Evridísi eftir Gluck, Orfeo eftir Monteverdi, La Clemenza di Tito eftir Mozart og Carmen eftir Bizet. Síðastnefndu verkin söng kórinn með Sinfóníuhljómsveit Íslands en Hljómeyki hefur komið reglulega fram með hljómsveitinni á undanförnum árum, síðast í Sköpuninni eftir Haydn.
Hljómeyki hefur gefið út fjóra geisladiska, með verkum eftir Hjálmar H. Ragnarsson, Þorkel Sigurbjörnsson, Báru Grímsdóttur og Jón Nordal og fleiri eru í bígerð.
Í maí 2008 tók kórinn þátt í hinni virtu kórakeppni Florilège Vocal de Tours. Tuttugu og einn kór hvaðanæva að úr heiminum tók þátt og varð Hljómeyki hlutskarpast í flokki kammerkóra ásamt kammerkórnum Khreschatyk frá Úkraínu. Í umsögnum dómnefndar sagði meðal annars að Hljómeyki hefði fallegan hljóm og einkar hrífandi og hjartnæma túlkun. Magnús Ragnarsson var einnig álitinn einn af bestu kórstjórum keppninnar en hann hefur stjórnað kórnum frá ágúst 2006.
Hljómeyki was founded in 1974 and has since then been one of the most notable chamber choirs in Iceland. At first , Hljómeyki mostly performed secular music from many different countries under the direction of Ruth L. Magnusson. In 1986 the cooperation between Hljómeyki and Skálholt Summer Concerts commenced with the emphases on premiering new Icelandic choral music which has been the main subject ever since. In Skálholt Hljómeyki has premiered works by Atli Ingólfsson, Elín Gunnlaugsdóttir, Hildigunnur Rúnarsdóttir, Jón Nordal, Jórunn Viðar, Óliver Kentish, Sveinn Lúðvík Björnsson, Úlfar Ingi Haraldsson, Þuríður Jónsdóttir to name a few. They have premiered over 50 pieces, both Icelandic and international, and one of them Glory and the Dream by Richard Rodney Bennett, was commisioned and premiered simultaniously by Hljómeyki and 12 other choirs all over the world.
Hljómeyki has taken part in many opera performances, many of them concert performances with the Iceland Symphony Orchestra, with whom they have also performed many religious works, most recently The Creation by Haydn.
Hljómeyki has released four CDs containing works by Hjálmar H. Ragnarsson, Thorkell Sigurbjörnsson, Bára Grímsdóttir and Jón Nordal. More releases are underway.
In May 2008 Hljómeyki participated in the acclaimed choral competition Florilège Vocal de Tours. 21 choirs took part and Hljómeyki shared the price in the chamber choir category with Khreschatyk chamber choir from Ukraine. The judges discribed Hljómeykis performance as charming and touching with a beautiful sound. The director, Magnús Ragnarsson, was also regarded as one of the best directors in the competition. He has been director of Hljómeyki since 2006.
