(Scroll down for English)
Sigurður Halldórsson lauk námi frá Guildhall School of Music sumarið 1990 og hefur síðan starfað sem kennari, einleikari og kammertónlistarmaður. Hann hefur fengist við fjölbreytilega tónlistarstíla allt frá miðöldum til nútímans og starfar með Caput hópnum, Voces Thules, Camerarctica, Skálholtskvartettinum og Bachsveitinni í Skálholti. Hann hefur, bæði sem einleikari og með fyrrnefndum hópum, komið fram á alþjóðlegum listahátíðum víða um Evrópu, Norður-Ameríku og Japan, og hljóðritað fjölda hljómdiska.
Sigurður hefur flutt stórann hluta tónbókmenntanna fyrir selló og píanó vítt og breitt, bæði á Íslandi, austan hafs og vestan ásamt Daníel Þorsteinssyni píanóleikara, en þeir hafa starfað saman í meira en aldarfjórðung. Þá hefur hann leikið allar einleikssvítur Bachs á Sumartónleikum í Skálholtskirkju og hljóðritað sellókonserta eftir Vivaldi með Bachsveitinni í Skálholti og Sinfóníuhljómsveit Íslands. Hann hefur tileinkað sér þá vinnuaðferð að leika alla tónlist á hljóðfæri í stíl hvers tíma að því marki sem aðstæður leyfa. Hann hefur alla tíð sem tónlistarmaður verið virkur í skipulagninu á tónleikahaldi og hljóðritunum. Hann var einn af stofnendum og aðalaðstandenum 15:15 tónleikasyrpunnar sem sett var á fót árið 2002. Þá hefur hann starfað sem listrænn stjórnandi Sumartónleika í Skálholtskirkju síðan í desember 2004.Sigurður kemur oft fram á vettvangi impróviseraðrar tónlistar. Hann hefur unnið í leikhúsi, m.a. að nokkrum tilraunasýningum í dans- og músikleikhúsi. Hann hefur haldið ýmis námskeið og fyrirlestra og stundað kennslu í sellóleik og kammertónlist. Hann er mentor og verkefnisstjóri í nýrri mastersgráðu í sköpun, miðlun og frumkvöðlastarfi sem Listaháskóli Íslands vinnur að í samvinnu við fjóra aðra tónlistarháskóla í Evrópu.
Sigurður Halldórsson studied in Reykjavík with Gunnar Kvaran and in London at the Guildhall School of Music and Drama, with Raphael Sommer. He has appeared as soloist in various festivals in Europe, in films and theatrical performances as well as solo appearances with orchestras. His repertoire includes all the major works for the solo ””cello. For two decades he has been one of the most active chamber musicians in Iceland . He is a member of the contemporary music ensemble CAPUT, sextet Camerarctica and a singer with the group Voces Thules, which specialises in Icelandic Mediaeval music. He also collaborates with some of the most acclaimed musicians in the experimental jazz and improvised music sector in Iceland. Since 1983, Sigurður has worked with the pianist Daníel Thorsteinsson, performing many of the major works from the cello and piano repertoire, in Europe, North America as well as in Iceland. He also works on regular bases with contemporary dancer Lovísa Ósk Gunnarsdóttir to explore the possibilities of the unity of dance and music on an equal level. Sigurður is an active performer of Early Music both solo and ensemble repertoire and has recorded concertos by Vivaldi with The Iceland Symphony Orchestra and Skalholt Bach Consort. He has worked extensively with the Dutch violinist Jaap Schröder with whom he plays in the Skálholt string quartet. Sigurður has been artistic director of Skálholt Summer Concerts Festival since December 2004. He was appointed mentor and coordinator for Joint Music Masters in New Audiences and Innovative Practice at Iceland Academy of the Arts in 2008.