(Scroll down for English)
Steingrímur Þórhallsson er uppalinn á Húsavík þar sem hann hlaut sína fyrstu tónlistarmenntun. Hann lauk píanókennaraprófi frá Tónlistarskólann í Reykjavík og kantorsprófi frá Tónskóla Þjóðkirkjunnar 1998. Orgelkennari hans var Marteinn H. Friðriksson, dómorganisti. Haustið 1998 hóf hann nám við Pontificio Istituto di Musica Sacra í Róm, sem er kirkjutónlistarstofnun Páfagarðs. Þaðan tók hann lokapróf “Magistero in organo” sumarið 2001 undir leiðsögn Giancarlo Parodi.
Steingrímur hefur komið víðs vegar fram í mörgeum helstu kirkjum á Íslandi sem einleikari og meðleikari við góðan orðstír og skipta tónleikar hans nú tugum en einnig hefur hann spilað á nokkrum hljóðritum hjá Ríkisútvarpinu, meðal annars tvo orgelkonserta Handel með Sinfóníuhljómsveit Íslands. Hann hefur komið fram á tónleikum erlendis, m.a á Ítalíu, Eistlandi, Finnlandi sem og getið sér gott orð sem kórstjórnandi nú síðast í Messías eftir Handel með kór Neskirkju og Sinfóníuhljómsveit áhugamanna.
Hann starfar sem organisti og kórstjóri við Neskirkju í Reykjavík ásamt vinnu með nokkrum tónlistarhópum á Íslandi.
Steingrímur Thórhallsson is raised in the small town of Húsavík in the north of Iceland where he had his first musical education. He finished teachers degree in piano from the Music school of Reykjavík and Cantor- exam from the music school of the national church of Iceland in 1998. His principal teacher of organ in Iceland was Marteinn H. Friðriksson, organist of the lutheran cathedral of Reykjavik. After that he went to Italy and studied at the “Pontificio Istituto di Musica Sacra” in Rome where he finished final exam in 2001, “Magistero in organo” with Giancarlo Parodi as maestro of organ.
Steingrímur has performed in most of the main churches of Iceland, both as soloist and accompagnist. He has also done a few registrations for the icelandic national radio, RUV, incliding two organ concerts of Handle with the National Symphonic Orchestra of Iceland. He has also performed abroad, for example in Italy, Estonia, Finland.
Currently he works as organist and choir director in Neskirkja, Iceland but at the same time works with a few ensembles in Iceland.