Christians Consort

Christians ConsortKammerkórinn Christians Consort var stofnaður af Martin Pearson, stjórnanda kórsins, árið 2003. Í kórnum syngja bæði atvinnu- og áhugasöngvarar. Eitt af markmiðum kórsins er að flytja áhugaverða kirkjutónlist sem sjaldan er flutt. Kórinn hefur m.a. flutt messur eftir Dvorak og Saint-Saëns ásamt messum eftir Úlfar Inga Haraldsson, Rheinberger og Hildigunni Rúnarsdóttur. Á Íslandi flytur kórinn norsk trúarleg þjóðlög ásamt rómantískri tónlist eftir Bruckner og Rachmaninoff og verkum eftir lettneska tónskáldið Rihards Dubra. Næsta verkefni kórsins er að syngja Missa Rigensis eftir lettneska tónskáldið Ugis Praulins.

Martin Pearson, stofnandi kórsins og stjórnandi, er frá Englandi og lærði kórstjórn og á orgel í London. Hann flutti til Noregs árið 1977 þar sem hann fékk stöðu sem organisti í dómkirkjunni í Kristiansand. Hann starfar nú sem organisti í Voie kirkju í Kristiansand en er jafnframt tónlistarráðgjafi í kirkjum í Adger og Telemark. Sem orgelleikari hefur hann komið fram um alla Evrópu, t.d. í Póllandi, Austurríki, Eistlandi og Ísrael. Hann hefur sérhæft sig í franskri tónlist, sérstaklega eftir tónskáldin Jean Langlais og Olivier Messiaen.

Comments are closed.