Ian Wilson

Ian Wilson kennir blokkflautumasterklass í Skálholti þann 26. júlí.

Ian WilsonIan Wilson er fagstjóri tréblásaradeildar Eton College og blokkflautuprófessor við Guildhall School of Music & Drama. Hann er sérstakur gestakennari North East of Scotland Music School í heimabæ sínum Aberdeen.

Ian lærði á blokkflautu og klarínettu við Guildhall School of Music & Drama þar sem hann vann ýmis verðlaun fyrir leik sinn á bæði hljóðfærin. Ian spilar með blokkflautukvartettinum The Flautadors, en með þeim hefur hann gefið út þrjá geisladiska sem allir hafa hlotið mikið lof. Hann er meðlimur Burney Players og kemur jafnframt reglulega fram með Adderbury Ensemble. Hann hefur komið fram sem einleikari með mörgum hljómsveitum sem sérhæfa sig í flutningi eldri tónlistar, t.d. Helsinki Baroque Orchestra, Irish Baroque Orchestra og English Concert. Hann hefur einnig komið fram og tekið upp með English National Opera, the Early Opera Company, BBC Philharmonic Orchestra, Bournemouth Symphony Orchestra, Retrospect Ensemble og Contemporary Music Specialists Kokoro.

Ian spilar fleira en klassíska tónlist en leik hans má t.d. heyra á nýjum plötum Paris Motel og flutningur hans með Vashti Bunya var valinn besti flutningur ársins af Jools Holland þættinum á BBC. Árið 2008 var fjallað um feril Ians á RÚV og árið 2010 kenndi hann Janet Street-Porter fyrir Sky Arts þáttinn First Love.

Comments are closed.