(Scroll down for English)
Bachsveitin í Skálholti var stofnuð árið 1986 fyrir tilstilli Helgu Ingólfsdóttur semballeikara. Sveitin helgar sig flutningi á tónlist 17. og 18. aldar og er brautryðjandi hér á landi í að flytja barokktónlist á hljóðfæri þess tíma. Ýmsir þekktir tónlistarmenn hafa leitt sveitina, þar á meðal gömbuleikarinn Laurence Dreyfus og fiðluleikararnir Ann Wallström, Catherine Mackintosh, Stanley Ritchie, Kati Debretzeni og Jaap Schröder, sem leiddi bachsveitina í rúm tíu ár. Núverandi leiðari Bachsveitarinnar er fiðluleikarinn Peter Spissky.
Bachsveitin hefur komið sér upp allgóðum hljóðfærakosti og réði það á sínum tíma úrslitum að Þjóðhátíðarsjóður veitti í fjögur ár styrk gagngert til hljóðfærakaupa í stíl barokktímans. Þáverandi sóknarprestur í Skálholti, sr. Guðmundur Óli Ólafsson lagði tónlistarstarfinu í Skálholti bæði til kammerorgel og kammersembal sem Bachsveitin hefur notið góðs af. Jafnframt hafa áhugasamir hljóðfæraleikarar keypt sér fleiri hljóðfæri í barokkstíl. Sumarið 1997 fór Bachsveitin í sína fyrstu tónleikaferð erlendis. Haldnir voru fernir tónleikar í Frakklandi. Jaap Schröder fiðluleikari hafði veg og vanda að undirbúningi fararinnar.
Eftirfarandi geisladiskar hafa verið gefnir út með leik Bachsveitarinnar:
Verk eftir Vivaldi og Telemann, einleikari: Camilla Söderberg, leiðari: Ann Wallström (1993). Konsertar og sónata eftir Vivaldi, einleikarar úr Bachsveitinni, leiðari: Jaap Schröder (2001). Ensk leikhústónlist á 17.öld, leiðari: Jaap Schröder (2006). Á næstunni eru væntanlegir diskar með frumhljóðritunum á ítalskri tónlist frá 17.öld og Stabat Mater eftir Boccherini.
The Skálholt Bach Consort was founded in 1986 by Helga Ingólfsdóttir. The group concentrates on the music of the 17 th and 18 th century and is the first one of it”s kind in Iceland that uses only period instruments. The leaders have been Laurence Dreyfus, Ann Wallström, Catherine Mackintosh, Stanley Ritchie, Kati Debretzeni and Jaap Schröder who has most often lead the ensemble since 1993. From 2008 the Skálholt Bach Consort has been lead by Peter Spissky.
The Bach Consort has a small collection of period instruments. This was made possible by a National Fund, Þjóðhátíðarsjóður. Also the former priest of Skálholt and patron of the Skálholt Summer Concerts , Guðmundur Óli Ólafsson, contributed to the Church of Skálholt a continuo organ and a harpsichord that the Bach Consort has access to while playing in Skálholt. This collection has proved vital for the ensemble in order to lend to musicians who do not have period instruments of their own. In 1997 the Skálholt Bach Consort went on it´s first tour abroad with their former leader Jaap Schröder in central France.
In the summer of 1993 the first recording of the Skálholt Bach Consort was released with Ann Wallström as leader. The ensemble has made four recordings with Jaap Schröder as leader. Vivaldi Concertos was released in 2001 and English 17th century Theatre Music in 2006. A CD with premiere recordings of Italian 17th century music and another one with Boccherini’s Stabat Mater will be released before long.
