Skálholtskvartettinn

(Scroll down for English)

Skálholtskvartettinn er skipaður tónlistarmönnum sem hafa í mörg ár tekið þátt í starfi Bachsveitarinnar í Skálholti og Sumartónleika í Skálholtskirkju. Það var fyrir tilstilli Helgu Ingólfsdóttur sem þau hófu að leika sem kvartett árið 1996 þegar þau léku 7 orð Krists á krossinum eftir Haydn á Skálholts- hátíð og ári seinna í Frakklandi (abbaye de la Prée, Bourges). Það má því segja að kvartettinn þakki Helgu tilveru sína að miklu leyti, en hópurinn hélt áfram starfsemi, mest á Sumartónleikum fyrst um sinn, en fljótlega fór hann að gera víðreist um Evrópu á milli þess sem hann hittist í Skálholti. Árið 2004 var kvartettinum boðið að leika á árlegri Haydn hátíð í hinni mikilfenglegu Esterhaza höll í Ungverjalandi. Þar flutti kvartettin einnig Sjö orð Krists á krossinum í nálægri kirkju þar sem Haydn hafði starfað sem organisti meðfram starfi sínu hjá Esterhazy hirðinni. Í sömu ferð lék kvartettinn í tónleikaröð ráðhússins í Ljubliana í Slóveníu. Verkefnaskráin hefur stækkað jafnt og þétt á þessum tíma, en hljóðritunin á 7 orðum Krists er frumraun kvartettsins og er gerð í Skálholtskirkju. Væntanleg er svo á geisladiski hljóðritun af verkum bræðranna Joseph og Michael Haydns og Luigi Boccherinis.

Haustið 2006 hélt kvartettinn sína fyrstu tónleika í Amsterdam og hefur síðan þá farið í fleiri tónleikaferðir til Hollands auk Frakklands og Ítalíu. Á árinu 2008 hélt kvartettinn þrenna tónleika á Tónlistarhátíð Mallorca. Sumarið 2009 var helgað verkum Haydns og Schuberts og á þessu ári hljóðritar kvartettinn strengjakvintett Schuberts með Bruno Cocset um leið og hópurinn heldur áfram að kanna verk þessa höfundar með sérstöku tilliti til hins síðklassíska flutningsmáta. Kvartettinn heldur í tónleikaferð í frönsku Alpana í ágúst og mun m.a. flytja G dúr kvartett Schuberts op. 161.

Skálholtskvartettinn skipa Jaap Schröder og Rut Ingólfsdóttir fiðluleikarar, Svava Bernharðsdóttir víóluleikari og Sigurður Halldórsson sellóleikari.

The members of the Skálholt string quartet have been since many years part of a group of musicians who participate in the concerts of the summer festival at the cathedral of Skálholt in southwest Iceland.

Their career as a string quartet started in 1996 when they concertized not only in Iceland but also in France (abbaye de la Prée, Bourges).Since then the Skálholt quartet has been invited to play in the Haydn festival which takes place every year in the magnificent Esterhaza palace in Western Hungary. On that occasion they also performed Haydn””s Seven last words of Christ on the cross in the nearby church where Haydn had been organist. A concert in Ljubljana, Slovenia, concluded this trip to central Europe.

Their repertoire in the mean time has steadily widened and the present disc has been their first recording project realized in the church at Skàlholt. A second disc with quartets by both the Haydn brothers and Boccherini awaits publication in the near future.

In 2006 the group presented its first concert in Amsterdam. Since then the musicians have returned to Holland for a series of concerts, as well as to France and Italy. After that the quartet was invited to play several concerts in the music festival of Mallorca. This year they will record Schubert’s quintet with two cellos, with Bruno Cocset, as they continue to explore the works of this composer with special attention to the many aspects of the classical performance practice. In August they will head down to the French Alps for several concerts, playing amongst other pieces the Schubert quartet op. 161.

The musicians of the Skálholt Quartett are Jaap Schröder and Rut Ingólfsdóttir violins, Svava Bernharðsdóttir viola and Sigurður Halldórsson ‘cello.