Sigurður Sævarsson

(Scroll down for English)

Staðartónskáld Sumartónleika 2010 er Sigurður Sævarsson.

Sigurður Sævarsson stundaði söngnám við Tónlistarskólann í Keflavík undir handleiðslu Árna Sighvatssonar.  Þaðan lá leiðin í Nýja tónlistarskólann, þar sem hann nam hjá Sigurði Demetz Franzsyni og  Alinu Dubik. Árið 1994 hóf Sigurður söng- og tónsmíðanám við Boston University í Bandaríkjunum, þar sem kennarar hans voru William Sharp, Charles Fussel, Sam Hedrick og Martin Amlin. Hann lauk þaðan meistaraprófi í báðum greinunum vorið 1997.
Viðfangsefni Sigurðar hafa aðallega verið kórverk og óperur.  Árið 2001 var ópera hans Z-ástarsaga, sem byggð er á samnefndri skáldsögu Vigdísar Grímsdóttur,  flutt á óperuhátíð í Reykjanesbæ, undir hans stjórn.  Í aðalhlutverkum voru þær Ingveldur Ýr Jónsdóttir og Jóhanna Linnet.  Óratóría Sigurðar, Hallgrímspassía, var frumflutt í Hallgrímskirkju 2007 af Schola cantorum, Caput og Jóhanni Smára Sævarssyni, bassa, undir stjórn Harðar Áskelssonar.  Passían var svo hljóðrituð í mars á þessu ári og flutt aftur á Kirkjulistahátíð í Hallgrímskirkju 2010, af sömu flytjendum.  Ópera hans Hel, sem byggð er á samnefndri skáldsögu Sigurðar Nordal, var frumflutt í Íslensku Óperunni á Listahátíð 2008.  Flytjendur voru Ágúst Ólafsson, Jóhann Smári Sævarsson, Hulda Björk Garðarsdóttir, kór Íslensku Óperunnar og Caput, undir stjórn tónskáldsins.
Sigurður er skólastjóri Nýja tónlistarskólans í Reykjavík.

Missa Pacis
Skálholt hefur alltaf átt sérstakan sess í lífi mínu. Í hvert skipti sem ég heimsæki þennan stað finn ég helgi og kyrrð færast yfir huga minn, jafnvel strax og ég sé kirkjuna birtast í fjarska. Síðan rennur maður í hlaðið þar sem þessi fallega kirkja heilsar manni og leifarnar af hversdeginum kveðja mann að sinni.
Ég valdi að semja við latneska messutextann. Þessi hreina og tæra trúarjátning er svo óskaplega upplyftandi og hreinsandi. Auðvitað þarf þessi yndislegi texti ekki á mér og mínum tónum að halda, en ég veit að ég þarf á honum að halda. Í hvert sinn sem ég les þessi fallegu orð kalla þau á svo margar tilfinningar: þakklæti, hamingju,kærleika, von…………..
Eins og með fyrri verk mín varð tónlistin alfarið til af orðunum. Engin laglína beið eftir „rétta“ textanum. Hver einasti tónn fæddist í orðunum.

Sigurður Sævarsson, recident composer of 2010

Sigurður Sævarsson studied singing at the Keflavík School of Music with Árni Sighvatsson before moving to the New Music School in Reykjavík, where his teachers were Sigurður Demetz and Alina Dubik. In 1994, Sigurður commenced studies in singing and composition at Boston University in the USA, where his teachers included William Sharp, Charles Fussel, Sam Hedrick and Martin Amlin. He gained his Masters Degree in both subjects in the Spring of 1997.