Anna S. Þorvaldsdóttir

Scroll down for English

Anna hefur síðastliðin ár verið afar áberandi meðal íslenskra tónskálda af ungu kynslóðinni. Verk hennar eru flutt reglulega um alla Evrópu og í Bandaríkjunum af íslenskum sem erlendum flytjendum. Verk hennar hafa hljómað á hátíðum á borð við Nordic Music Days, Prague Premieres, Festival Nordischer Klang í Þýskalandi, Sumartónleika í Skálholti, Ung Nordisk Musik og Myrka Músíkdaga svo fá eitt sé nefnt. Verk Önnu Sex mínútur var valið af Ríkisútvarpinu á Alþjóðlega tónskáldaþingið sem fór fram í Vín árið 2005 og var verkinu í kjölfarið útvarpað um allan heim.

Meðal tónlistarmanna, hópa og hljómsveita sem leikið hafa og/eða pantað verk eftir Önnu má nefna Sinfóníuhljómsveit Íslands, Caput, Hljómeyki, Mótettukór Hallgrímskirkju, Aton/Njúton, Adapter Ensemble, Athelas Ensemble, Nordlys ensemble, Vocal ensemble Talla, Harpverk, Elfu Rún Kristinsdóttur fiðluleikara, Melkorku Ólafsdóttur flautuleikara, Frank Aarnink slagverksleikara, Goska Isphording semballeikara og Susan Narucki.

Sinfóníuhljómsveit Íslands hefur hljóðritað þrjú hljómsveitarverka Önnu. Dreymi var frumflutt af hljómsveitinni þann 14. janúar 2010 undir stjórn Bernharðar Wilkenson og Stund milli stríða var flutt á áskriftartónleikum hljómsveitarinnar undir stjórn Christian Lindberg þann 30. mars 2006. Verk Önnu hafa jafnframt komið út á nokkrum geisladiskum, má þar nefna Roto con moto með tónlistarhópnum Njúton sem hlaut tilnefningu til Íslensku tónlistarverðlaunanna árið 2008.

Anna stundaði nám í sellóleik um 12 ára skeið, meðal annars undir handleiðslu Sigurðar Halldórssonar og Gunnars Kvaran. Hún sótti einnig ýmis námskeið, masterklassa og einkatíma hjá erlendum sellóleikurum svo sem Colin Carr, Raphael WalÞsh og Erling Blöndal Bengtson. Þá kenndi hún sellóleik á árunum 1997-2006 við Tónskóla Sigursveins D. Kristinssonar.

Anna lauk BA-gráðu í tónsmíðum frá Listaháskóla Íslands vorið 2004 þar sem aðalkennari hennar var Mist Þorkelsdóttir. Árið 2006 hélt hún í framhaldsnám í tónsmíðum við University of California í San Diego í Bandaríkjunum. Þaðan lauk hún Mastersgráðu í tónsmíðum vorið 2008 og stundar nú doktorsnám við sama skóla í samstarfi við Rand Steiger tónskáld og hljómsveitarstjórnanda. Áætluð námslok eru árið 2011. Hún hefur einnig sótt námskeið hjá fjölda tónskálda í UCSD og víðar.
Anna hefur sinnt aðstoðarkennslu við University of California í San Diego síðan árið 2006 þar sem hún hefur kennt tónlistarsögu og tónlistargreiningu.

Anna vinnur nú að undirbúning portrait geisladisks með völdum hljómsveitarverkum sem áætlað er að komi út árið 2011.
Á næstu vikum hljóma verk Önnu meðal annars á tónleikum á Íslandi og í Bandaríkjunum. Meðal þess sem er á döfinni hjá Önnu er vinna við verk fyrir Sumartónleika í Skálholti og pöntun frá Sinfóníuhljómsveit Íslands vegna hljómsveitarverks sem frumflytja á í nýja tónlistar- og rádstefnuhúsinu í Reykjavík.

http://www.annathorvalds.com/is/cv.html

Anna S. Thorvaldsdóttir has in recent years been very prominent among young Icelandic composers. Her music is frequently performed all over Europe and in the US. Her pieces have been performed at music festivals such as Nordic Music Days, Prague Premieres, Festival Nordischer Klang, Skálholt Summer Concerts, Young Nordic Music, and Dark Music Days, to name a few. The piece Six minutes was selected by the Icelandic National Broadcasting Service for the annual International Rostrum of Composers (IRC) in Vienna 2005 and was subsequently broadcasted internationally.

Among groups and orchestras that have played and/or commissioned Anna”s works are: the Iceland Symphony Orchestra, Caput ensemble, Hljómeyki choir, Mótettukór Hallgrímskirkju choir, Aton/Njúton, Adapter Ensemble, Athelas Ensemble, Nordlys Ensemble, Vocal ensemble Talla and Duo Harpverk.

The Iceland Symphony Orchestra has recorded three of Anna”s orchestra pieces. Dreaming was premiered by the orchestra January 14th 2010, conducted by Bernharður Wilkenson and Moment of peace was performed March 30th 2006, conducted by Christian Lindberg. Anna”s pieces have been released on several recordings, for example on Roto con moto by Njúton ensemble, which was nominated for the Icelandic Music Awards in 2008.

Anna studied the cello for 12 years, amongst others with Sigurður Halldórsson and Gunnar Kvaran. She also attended masterclasses and private lessons with other cellists, such as Colin Carr, Raphael Walfish and Erling Blöndal Bengtson. She taught the cello in Iceland from 1997 to 2006.

Anna finished her BA degree in composition from the Iceland Academy of the Arts in 2004. In 2006 she started her graduate studies at the University of California in San Diego, where she received her Masters degree in 2008. She is currently doing her PhD studies in the same department with composer and conductor Rand Steiger. She has also attended many masterclasses and private lessons with several other composers at UCSD and elsewhere. Anna has been working as a teaching assistant at the University of California, San Diego since 2006.

Anna is currently planning a portrait CD with some of her orchestra pieces that will be released in 2011.

Among Anna”s current commissions is an orchestra piece for the Iceland Symphony Orchestra, to be performed early 2012 in the new Icelandic National Concert and Conference Centre in Reykjavik and a chamber orchestra piece for UCSD New Music Ensemble.