(scroll down for English)
Greta Salóme fæddist í Reykjavík árið 1986. Hún hóf tónlistarnám í Suzukiskóla Íslands fjögurra ára gömul og fór svo í Allegro Suzukiskólann þar sem hún lærði hjá Lilju Hjaltadóttur. 13 ára fór hún í Tónlistarskóla Reykjavíkur og lærði þar undir leiðsögn Guðnýjar Guðmundsdóttur. Árið 2008 útskrifaðist hún úr Listaháskóla Íslands með B.mus gráðu í fiðluleik en einnig lærði hún við Stetson University þar sem kennari hennar var Routa Kroumouvitch. Árið 2008-2009 starfaði hún sem fiðluleikari við Sinfóníuhljómsveit Íslands. Greta Salóme starfar nú við ýmis tónlistarverkefni bæði á klassíska sviðinu sem og öðrum en mun hefja mastersnám í tónlist í haust.
Greta Salóme was born in Reykjavík in 1986. She started her musical studies at the age of 4 at The Suzuki School of Iceland but then went to the Allegro Suzuki School where she studied with Lilja Hjaltadóttir. At the age of 13 she went to Reykjavík Collage of music and studied with professor Guðný Guðmundsdóttir. In the year of 2008 she graduated from Iceland Academy of the Arts but also studied with professor Routa Kroumouvitch at Stetson University for one year . In the year of 2008-2009 she played with The Iceland Symphony Orchestra. Greta Salóme has been doing various musical projects both on the classical and non-classical music field but this fall she will pursue her master´s degree in music.
