(Scroll down for English)
Collegium Cantorum er blandaður kór við Dómkirkjuna í Uppsala í Svíþjóð. Í kórnum eru 45 – 50 vanir söngvarar á aldrinum 25 til 50 ára. Kórinn var stofnaður 1983 úr öðrum kór dómkirkjunnar, Schola Cantorum, sem framhaldskór fyrir þá félaga úr Schola Cantorum sem vildu þróa hæfileika sína í tónlist og kórsöng enn meira.
Kórinn er einn af kirkjukórum dómkirkjunnar í Uppsala og syngur því helst í þeirri kirkju bæði við kirkjulegar athafnir og tónleikahald. Kórinn kemur einnig oft fram með öðrum kórum safnaðarins í sameiginlegum verkefnum.
Söngskrá kórsins er afar breið, þó með áherslu á kirkjulega endurreisnar, barokk og samtímatónlist. Kórinn syngur reglulega hin stóru verk kirkjutónbókmenntanna (m.a. H moll messu, Jólaóratóríu og passíur Bachs og sálumessur Verdis, Brahms og Mozarts). Kórinn mun syngja Maríuvesper Monteverdis tvisvar á þessu ári utan Skálholtstónleika.
Söngferðir erlendis eru fastur punktur í starfi kórsins. Árið 1993 var kórinn ásamt Schola Cantorum Uppsala í Víetnam, fyrsti evrópski kórinn þar í landi eftir stríðið í Indókína, og vakti söngferðin þá mikla athygli. Meðal annarra landa sem kórinn hefur heimsótt má telja Ísland (1992) Rúmeníu, Þýskaland, Bandaríkin og Írland, þar sem kórinn fór með sigur af hólmi í kórakeppni í Sligo, bæði í flokknum kirkjutónlist og í aðalkeppninni (2005)
Collegium Cantorum hefur gefið út tvo geisladiska, “Messías” eftir G.F. Händel og “Gárdonyi – From Generation to Generation” með tónlist eftir ungversk- þýsku tónskáldin og feðgana Zsolt Gárdonyi og Zsoltán Gárdonyi. Þar að auki syngur kórinn “Jerusalem” eftir Knut Nysted, verk sérsamið fyrir Collegium Cantorum, á safndiski með verkum Nysteds. Á þessu ári kemur út nýr geisladiskur kórsins með sálmatónlist sem tekin var upp í dómkirkjunni í Uppsala. Er þar um að ræða kórsöng og orgelverk þar sem öll fjögur orgel dómkirkjunnar koma við sögu.Fyrsti stjórnandi kórsins var fyrrverandi dómorganistinn Lars Angerdal (d. 2006).
Núverandi stjórnandi og dómorganisti í Uppsala er Olle Johansson og hefur hann verið stjórnandi kórsins frá 2002.
www.collegiumcantorum.se
Collegium Cantorum is a choir at the Uppsala Cathedral and has approximately 50 members. The choir was founded in 1983 by singers in the motet choir Schola Cantorum. The idea was to create a choir for more advanced singers who wanted to further develop their musical skills.Collegium Cantorum has a broad repertoire stretching from choral symphonic polyhony to contemporary Nordic composers. At least once a year we perform one of the larger sacred works with soloists and orchestra. In addition to participating in services the choir gives around five concerts a year.Through numerous international tours, Collegium Cantorum has become well renowned abroad. In 1993, Collegium Cantorum and Schola Cantorum were the first foreign choirs to be let into Vietnam since the 1940s. The tour received a lot of attention throughout Vietnam.
