Rannveig Sif Sigurðardóttir

(Scroll down for English)

Rannveig Sif Sigurðardóttir lærði söng í Söngskólanum í Reykjavík hjá Sigurveigu Hjaltested og í Tónlistarskólanum í Reykjavík hjá Elísabetu Erlingsdóttur. Eftir það stundaði hún söngnám við konunglega tónlistarháskólann í Den Haag í Hollandi, þar sem hún tók kennarapróf í klassískum söng en sérhæfði sig líka í barokksöng.
Síðan hún lauk námi hefur hún búið erlendis og sungið með ýmsum tónlistarhópum í Evrópu s.s. Musika Fiata, Köln, Collegium Vocale Gent, Rheinische Kantorei, Huelgas Ensemble og m.a. sungið með stjórnendunum Philippe Herreweghe, Thomas Hengelbrock, Paul van Nevel, Hermann Max og ferðast um flest lönd Evrópu og um Bandaríkin með þeim og sungið inn á geisladiska, í útvarp og sjónvarp. Einnig hefur hún sungið með brasilískri barokkhljómsveit á þekktri tónlistarhátíð í Brasilíu og sungið með þeim inn á geisladiska t.d. ýmsar messur eftir brasilísk barokktónskáld. Á námskeiði tónlistarhátíðarinnar kenndi hún líka barokksöng. Svo hefur hún sungið ballöður og ýmis sóló inn á fjölda þungarokksgeisladiska. Á Íslandi hefur hún t.d. sungið á sumartónleikum í Skálholti, sumartónleikum á Norðurlandi og tekið þátt í ýmsum barokkuppfærslum með Gunnsteini Ólafssyni.

Rannveig Sif Sigurðardóttir had singing lessons with Sigurveig Hjaltested at the Reykjavík Academy of Singing and Vocal Arts and with Elísabet Erlingsdóttir at Reykjavík Conservatory. After that she studied at the Royal Conservatory of the Hague, where she had pedagogic studies in classical singing and also specialized in baroque singing.

Since she completed her studies Rannveig has been living abroad and has sung with numerous ensembles such as Musika Fiata, Köln, Collegium Vocale Gent, Rheinische Kantorei, Huelgas Ensemble and conductors such as Philippe Herreweghe, Thomas Hengelbrock, Paul van Nevel, Hermann Max with whom she has toured throughout Europe and USA and made recordings for both radio and television. She has also sung with a Brazilian baroque ensemble at a renown music festival in Brazil. With them she made recordings of masses by Brazilian baroque composers. She also taught baroque singing at a course in the same festival. In addition to this she has sung ballads and various solos into many rock albums. In Iceland she has participated in Skálholt Summer Concerts, summer concerts in Northern Iceland and various baroque performances with Gunnsteinn Ólafsson.