(Scroll down for English)
Marta Guðrún Halldórsdóttir stundaði söngnám í Tónlistarskólanum i Reykjavík og framhaldsnám við Tónlistarháskólann í München í Þýskalandi. Hún hefur frá árinu 1993 starfað sem söngkona og komið fram með helstu kórum, hljómsveitum og kammerhópum hér á landi. Marta hefur verið í fremstu röð túlkenda á sviði samtímatónlistar, hefur frumflutt og hljóðritað íslensk verk og flutt íslenska tónlist á tónleikaferðum m.a. í Japan og víða í Evrópu. Hún hefur farið með aðalhlutverk í óperum og söngleikjum á sviði Íslensku óperunnar, Þjóðleikhúsins, og Leikfélags Akureyrar og tekið þátt í fjórum nýjum barnaóperum á vegum Strengleikhúsins.
Frá unglingsaldri hefur Marta komið fram á tónleikum Sumartónleika í Skálholti. Fyrst sem meðlimur Hljómeykis en síðan oftsinnis sem einsöngvari bæði á sviði barroktónlistar sem og í tónlist íslenskra höfunda. Má þar nefna Sálmar á atómöld eftir Elínu Guðmundsdóttur 2004, Ó jesú eðla blómi eftir Þórð Magnússon 2002 Skálholtsmessu Hróðmars H. Sigurbjörnssonar 2000 auk verka eftir Þorstein Hauksson, Áskel Másson, Þorkel Sigurbjörnsson, John Speigt og fleiri.
Marta hefur lagt rækt við íslenskan tónlistararf og flutt íslensk þjóðlög í útsetningum ýmissa tónskálda, gjarnan með Erni Magnússyni píanóleikara. Þau eru einmitt stofnendur smásveitarinnar Spilmanna Ríkinis sem flytur gamla íslenska tónlist á forn íslensk hljóðfæri.
Helstu hljómdiskar með söng Mörtu eru: Íslensk Þóðlög, safn Engel Lund ásamt Erni Magnússyni píanóleikara. Tíminn og Vatnið, tónverk Atla Heimis með Kammersveit Reykjavíkur, Skálholtsmessa eftir Hróðmar Inga Sigurbjörnsson með Caput, Gömul Ljósmynd, sönglög Tryggva Baldvinssonar, Amor, með Musica Antiqua og Melodia með kammerkórnum Carminu.
Marta Guðrún Halldórsdóttir completed her soloist”s examination at Reykjavík College of Music and continued her formal education at Munic Academy of Music, Germany. She has performed at numerous art festivals,both in Iceland and abroad, including Skálholt Summer Concerts, Reykjavík Arts Festival and the Spring Festival in Budapest. She has also appeared at the European Culture City 2000 festivals in Reykjavík, Prag and Bologna. While Halldórsdóttir is among Icelands most accomplished interpreters of modern music and has premiered a host of new compositions, she has concentrated on the performance of Baroque and Renaissance music as well. She has sung leading roles in operas and musicals, both at the National Theatre of Iceland and at the Icelandic Opera. Marta Guðrún Halldórsdóttir has made numerous recordings for CD´s with the leading choirs and orchestras of Iceland such as the Motett choir of Hallgrímskirkja and Schola Cantorum as well as with the Reykjavík Chamber Orchestra and the Caput Ensemble. She has performed extensively with the pianist Örn Magnússon.