Stúlknakór Reykjavíkur

Stúlknakór Reykjavíkur var stofnaður af Margréti J. Pálmadóttur kórstjóra, haustið 1994.  Frá árinu 2000 hefur kórinn starfað í sönghúsinu Domus Vox við Skúlagötu. Stúlknakórinn hefur ávallt verið fjölmennur og um þessar mundir eru félagar um 100  á aldrinum fimm ára til nítján ára og er starfið aldursskipt.

Starf Stúlknakórsins byggir meðal annars á því að þroska söngnæmi nemenda með því að flytja kórtónlist af ýmsum toga.  Fjöldi stúlknanna stundar einnig einsöngsnám við söngskólann Domus Vox, þannig er söngur orðinn stór þáttur í lífi þeirra.

Kórinn hefur haldið fjölda tónleika, bæði sjálfstæða og í samtarfi við aðra kóra.  Hann hefur meðal annars sungið með Sinfoníuhljómsveit Íslands, hann hefur í nokkur ár sungið aðventutónleika með kvennakórum Margrétar  í Hallgrímskirkju, þar sem 200 konur og stúlkur sameinast í hátíðlegum söng.  Samstarf kóranna er mjög mikilvægt og náði hámarki þegar á annað hundrað konur og stúlkur á öllum aldri klæddust íslenskum þjóðbúningum og sungu fyrir forseta Íslands og sænsku konungsfjölskylduna í Perlunni í september 2004 Haustið 2004 tóku 33 stúlkur úr kórnum þátt í söngleiknum “Litla stúlkan með eldspýrnar”, sem sýndur var í Íslensku óperunni.  Síðastliðin  sumur hafa einn eða fleiri hópar úr stúlknakór farið í söngbúðir til Toscana á Ítalíu og sungið í kirkjum og torgum í ýmsum borgum héraðsins og utan þess.  Í sumar sem leið hélt Kórinn til Rómar og söng meðal annars í Péturskirkjunni og hélt stórkostlega tónleika í San Ignazio kirkjunni í Róm.

http://domusvox.is/