Magnús Ragnarsson

(Scroll down for English)

Magnús Ragnarsson lauk mastersgráðu í kirkjutónlist frá Tónlistarháskólann í Gautaborg og stundaði framhaldsnám í kórstjórn hjá prófessor Stefan Parkman við Háskólann í Uppsölum.. Hann tók við starfi organista Áskirkju í september 2007 og stjórnar kór kirkjunnar. Áður var hann organisti Breiðholtskirkju, Odda á Rangárvöllum og Nynäshamnkirkju í Svíþjóð. Einnig hefur hann samið nokkur tónverk. Magnús tók við stjórn Söngsveitarinnar Fílharmóníu í janúar 2006 og sönghópsins Hljómeykis í ágúst 2006. Meðal stærri verka sem Magnús hefur stjórnað eru Vesper solennes de Confessore og Requiem eftir Mozart, Stabat Mater eftir Haydn, Dixit Dominus eftir Handel, Messa í g-moll eftir Bach, Messa í As-dúr eftir Schubert, Carmina burana eftir Carl Orff, Náttsöngvar eftir Rakhmanínov, Óttusöngvar að vori eftir Jón Nordal og Þýsk sálumessa eftir Brahms. Síðastnefnda verkið flutti Magnús með Söngsveitinni Fílharmóníu og Lutoslawski Fílharmóníuhljómsveitinni í Wroclaw í Póllandi við mjög góðar undirtektir.

Magnus Ragnarsson completed his Masters degree in church music from the Academy of Music and Drama in Gothenburg and studied choir conducting with professor Stefan Parkman at the Uppsala University. From September 2007 he has been organist and choir conductor at Áskirkja. Before he was organist at various churches: Breiðholtskirkja, Oddi at Rangárvellir and Nynäshamnkyrka in Sweden. He has also occupied himself with some composing.
Magnus has been the conductor of the choir Söngsveitin Fílharmónía since January 2006 and the vocal ensemble Hljómeyki since august 2006. He has conducted works such as Vesper solennes de Confessore and Requiem by Mozart, Stabat Mater by Haydn, Dixit Dominus by Handel, Mass in g-minor by Bach, Mass in a flat major by Schubert, Carmina burana by Carl Orff, Vespers by Rachmaninov, Óttusöngvar að vori by Jón Nordal and Ein Deutsches Requiem by Brahms which he performed with Söngsveitin Fílharmónía and the Lutoslawski Philharmonic in Wroclaw in Poland.