Olle Johansson

(Scroll down for English)

Olle Johansson hefur verið dómorganisti í Uppsölum frá árinu 2002. Er hann var kominn fast að því að útskrifast úr tækniháskóla tók hann þá ákvörðun að fylgja hjartanu og nema orgelleik við konunglega tónlistarháskóann í Stokkhólmi. Meðal kennara hans var hinn þekkti sænski kórstjóri Eric Ericson.

Frá 1978 til 2002 starfaði hann sem organisti og kórstjóri við Engelbrekt kirkjuna í Stokkhólmi. Hann kenndi auk þess við konunglega tónlistarháskólann. Eftir margra ára feril sem kórsöngvari undir stjórn Erics Ericsonar hefur Olle Johansson alla tíð haft sérstakan áhuga á kórtónlist og kórstjórn.

Olle Johansson has been the cathedral organist of Uppsala Cathedral since 2002. Just about having finished his technology studies he made the decision to change course and follow his passion and studied to become an organist at the Royal College of Music in Stockholm. Among his teachers was the famous Swedish choir guru Eric Ericson.

From 1978 to 2002 Olle Johansson was an organist and a choir conductor at the Engelbrekt Church in Stockholm. He was also a teacher at the Royal College of Music. After singing himself for many years in Eric Ericson’s choirs, he has retained an avid interest in choral music and in particular the art of conducting choral ensembles.